Borga tæknifrjóvgun fullu verði

Borga tæknifrjóvgun fullu verði

Þá verður alfarið hætt að niðurgreiða tæknifrjóvgunarmeðferðir fyrir fólk sem á barn fyrir, en þátttaka Sjúkratrygginga í þeim tilvikum hefur verið 15 prósent af kostnaði.

 

Sjúkratryggingar Íslands greiða 65 prósent af kostnaðinum við aðra til fjórðu tæknifrjóvgunarmeðferð, ef fólk þarf á þeim að halda. Áætlað er að útgjöld Sjúkratrygginga Íslands muni lækka um 30 milljónir króna á ári vegna þessara breytinga.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur gefið út reglugerð vegna þessa, en það er nauðsynlegt þar sem enginn samningur er í gildi milli Sjúkratrygginga og ART Medica, læknastofunnar sem sér um tæknifrjóvganir hér. Samningurinn rann út fyrr á árinu og ekki náðust nýir samningar. Þá setti velferðarráðherra reglugerð til bráðabirgða. Reglugerðin nú gildir út árið 2012.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri