Tannlækningar barna verða greiddar að fullu
Samningur Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar barna tekur gildi á morgun. Tannlækningarnar verða greiddar að fullu af SÍ að undanskildu 2.500 kr. árlegu komugjaldi. Velferðarráðherra undirritaði reglugerðina í gær.
