Mælingar sýna að Barbie er verulega vansköpuð
Barbie, frægasta dúkka í heimi, hefur oft verið skotmark femínsta og annarra sem telja hana ömurlega fyrirmynd; hún stuðli að óheilbrigðum hugmyndum um líkama kvenna með sitt þvengmjóa mitti og löngu leggi. Og, með því að stækka dúkkuna í fulla líkamsstærð, í þrívíddarmódeli, kemur á daginn að mittismál hennar er 46 sentímetrar sem nær vart helmingi þess sem er á meðalstórri eðlilegri 19 ára gamalli stúlku.
