Vill eignast haug af börnum með Beyoncé
“Klárlega, ef Guð leyfir. Ég myndi vilja eignast lítið körfuboltalið,” segir Jay-Z í viðtali við Angie Martinez en parið á átján mánaða dótturina Blue Ivy saman.
Jay-Z og Beyoncé hafa reynt eftir bestu getu að halda einkalífi sínu úr fjölmiðlum en Beyoncé afhjúpaði ýmislegt í heimildarmyndinni Life Is But a Dream.
“Þá varð ég örlítið stressaður en þetta var eitthvað sem hún þurfti að gera. Manni líður skringilega að opna sig svona mikið sérstaklega þar sem maður opnar sig í tónlistinni,” segir Jay-Z um myndina, samkvæmt vísir.
{loadposition nánar fréttir}