Niðurgreiðslur dagmamma
|

Seltjarnarnes Niðurgreiðslur

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi. Bæjarstjórn ákveður fjárhæð hverju sinni að fenginni tillögu skólanefndar.

Skilyrði fyrir greiðslu eru:

  • Að barnið eigi lögheimili á Seltjarnarnesi.
  • Að viðkomandi dagforeldri hafi starfsleyfi samkvæmt reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
  • Að barn hafi náð 12 mánaða aldri.
  • Að barnið sé slysatryggt.
  • Að foreldri sæki um niðurgreiðslur til Seltjarnarnesbæjar, á þar til gerðu eyðublaði.

Greiðsla Seltjarnarnesbæjar til dagforeldra vegna barna með lögheimili á Seltjarnarnesi frá og með 1. ágúst 2017:

Ef hjón og sambúðarfólkEf einstæðir foreldrar
og/eða báðir foreldrar
eru í námi
Ef annað foreldri
er í námi
Fyrir 6 stunda vistun49.500 kr.57.120 kr.54.060 kr.
Fyrir 6,5 stunda vistun53.625 kr.61.880 kr.58.565 kr.
Fyrir 7 stunda vistun57.750 kr.66.640 kr.63.070 kr.
Fyrir 7,5 stunda vistun61.875 kr.72.400 kr.67.575 kr.
Fyrir 8 stunda vistun66.000 kr.76.160 kr.72.080 kr.
  • Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
  • Leggja skal fram fjölskylduvottorð í tilviki einstæðra foreldra og námsvottorð skóla í tilviki námsmanna.
  • Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá systkinaafslátt fyrir leikskólabarnið/börnin og eða barn/börn í Skjóli/Frístund.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum.
  • Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Gildir frá 1. janúar 2021.

oli
Author: oli

Vefstjóri