Samstillt átak þarf gegn lúsavandamáli

Samstillt átak þarf gegn lúsavandamáli

Þetta segir Ása Atladóttir, hjúkrunarfræðingur á sóttvarnarsviði landlæknisembættisins, en víða hefur orðið vart við lús í hári skólabarna að undanförnu.

 

„Þetta er náttúrlega vandamál og er úti um allt, en það er á ábyrgð foreldra og forráðamanna að bregðast við,” segir Ása. Hún bætir við að meðal foreldra sem fylgjast vel með hári sinna barna og kemba reglulega hafi hún orðið vör við nokkra óánægju með tregðu sumra foreldra til að taka þátt í þessu „hópverkefni”.

„Þannig geta þau sem eru samviskusöm í þessum efnum lent í því að allt sé unnið fyrir gýg strax næsta dag. Þess vegna er svo mikilvægt að allir kembi.”

Ása segir að lúsavandamál séu alltaf illviðráðanleg þar sem börn umgangast vini og félaga úr öðrum skólum og hverfum. „Þannig er þetta viðvarandi, enda hefur lúsin frá upphafi mannkyns alltaf komist undan.”

Ása segir úrræðin ekki vera mörg en þó hafi þeim farið fjölgandi síðustu ár. Til dæmis hefur áburðurinn Hedrin gefið góða raun.

„Það er nokkuð sniðugt efni því að þar er ekki um að ræða eitur, eins og þau lúsaefni sem hafa hingað til verið algengust. Þetta er silíkonefni sem húðar lúsina og kæfir, og þess vegna eru engar líkur á að lúsin þrói ónæmi gegn því.”

Slík efni má hafa í hári barna eins lengi og foreldrar telja nauðsynlegt án þess að það valdi skaða. Að vísu kemur fram í leiðarvísi með lyfinu að það eigi að vera í hári í klukkustund en á heimasíðu landlæknisembættisins er mælst til þess að það sé í átta tíma. Ása segir að rannsóknir sem framleiðandi efnisins notar segi klukkustund nægja en beri það ekki árangur segir Ása óhætt að hafa það lengur í næst. Varnirnar gegn lús hefjist þó umfram allt heima við, samkvæmt vísir.

„Það sem ég held að væri best er að fólk hugsaði almennt um þetta og kembdi sig og börnin sín reglulega, þannig að þetta yrði eins og rútína. Þá myndi það strax draga úr þeim lúsasmitum sem eru í gangi.”

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri