Rikka eldar í háloftunum
„Varðandi matseðilinn sjálfan þá lagði ég upp með að vera með einfalda rétti en einblína þeim mun frekar á að hráefnið væri sem allra ferskast, mér finnst það skipta höfuðmáli. Það er svolítill hausverkur að reyna að meta matarsmekk mörg þúsund farþega en ég vona að það hafi tekist.„
Fyrir stuttu stofnaði Rikka eins og hún er gjarnan kölluð matvælafyrirtækið “GOTT„ sem framleiðir eftirrétti, ís og nú nýlega kaldar sósur. Ein tegund eftirréttanna verður seld um borð og sósurnar verða notaðar í samlokurna og með salatinu, samkvæmt vísir.
Aðspurð hvort hún sé vön að gæða sér á flugvélamat á ferðalögum sínum svarar Rikka því játandi. „í mínum augum er flugferð dekurstund og oft á tíðum kærkomin stund fyrir mig. Þá er til dæmis ekki hægt að ná í mig í síma og lítið sem truflar. Mér finnst því tilvalið að gera vel við mig í mat sem og drykk.„
{loadposition nánar fréttir}