Ólíklegt að fólk láti börnin bíða

Ólíklegt að fólk láti börnin bíða

 

Í vor nær kerfið til barna á aldrinum 15 til 17 ára. Í haust bætast við þriggja ára og 12 til 14 ára og svo verður bætt við hópum fram í ársbyrjun 2018. Sigurður Benediktsson, tannlæknir og fyrrverandi formaður Tannlæknafélags Íslands, telur þó ekki að við þetta skapist sérstök vandamál. „Ekki má gleymast að ástandið er óbreytt fyrir börn sem ekki detta alveg strax inn í kerfið,“ segir hann og telur ólíklegt að foreldrar bíði með heimsóknir til tannlæknis þar til börn ná „réttum“ aldri. Í hönnun á nýja kerfinu í fyrrasumar hafi líka verið gert ráð fyrir að búin yrðu til sérstök úrræði fyrir börn sem illa stæðu félagslega, samkvæmt vísir.

„Síðan gætu stjórnmálamenn líka ákveðið í framhaldinu að innleiða kerfið hraðar,“ bendir Sigurður á og telur ljóst að breytingarnar séu til mikilla bóta. Fyrirséð sé að fólk komi í framhaldinu mun frekar með börn til tannlæknis. „Og svo er sérstakt fagnaðarefni að samið er til langs tíma. Þetta er langhlaup.“.

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri