Munu ekki geta staðið við fyrirheit um pláss fyrir öll 12 mánaða börn
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu.
Þar segir að unnið sé að því að safna upplýsingum um stöðuna og hún verði kynnt fyrir borgarráði á fimmtudaginn.
Helgi segir aukinn straum fólks til Reykjavíkur hluta vandans.
„Það eru svo ofboðslega miklar breytingar á þessum listum hjá okkur. Hvert barn sem flytur til Reykjavíkur, sem er tveggja ára eða eldra, ýtir einhverjum út sem hefði kannski verið næstur í röðinni. Við þurfum alltaf að vinna eftir kennitöluröðuninni og erum með síkvikar upplýsingar, sem við þurfum að vinna úr til að geta gefið heildarmynd af stöðunni.“
Þá hafi ytri þættir á borð við kórónuveirufaraldurinn og stríðið í Úkraínu haft áhrif á aðfangakeðjur, sem hafi komið niður á byggingaframkvæmdum, samkvæmt visir.
{loadposition nánar fréttir}