Minnst 200 leikskólakennara vantar til starfa í Reykjavík í haust

Minnst 200 leikskólakennara vantar til starfa í Reykjavík í haust

Minnst 200 leikskólakennara vantar til starfa í Reykjavík í haust

 

Leikskólamál voru flestum ef ekki öllum flokkum ofarlega í huga í aðdraganda kosninga og í gær kynnti nýr meirihluti í Reykjavík stefnu sína í leikskólamálum. Meðal annars hyggst nýr meirihluti fjölga ungbarnadeildum, byggja fleiri leikskóla, auka faglegt frelsi kennara og hafa sumaropnun í tilraunaskyni í einum leikskóla í hverju hverfi.

Það gæti þó reynst þrautin þyngri að fá fólk til starfa til að mæta þessari fjölgun plássa sem stefnt er að, að mati nokkurra leikskólastjórnenda sem fréttastofa ræddi við í dag. Ein þeirra er Guðrún Jóna Thorarensen, leikskólastjóri á leikskólanum Sólborg.

„Síðasta haust þá vantaði 130 stöðugildi. Núna eftir síðustu talningu sem að við leikskólastjórarfengum þá vantar 200 stöðugildi fyrir næsta haust,” segir Guðrún Jóna. „Við þurfum ekki stækkun akkúrat núna, við þurfum að passa upp á það sem að við höfum.” Hún fagnar því að til standi að stytta vinnuvikuna og bæta kjör leikskólakennara líkt og kveðið er á um í meirihlutasáttmálanum en annað telur hún skjóta skökku við. Til að mynda hafi gengið það illa að manna að launaafgangi hafi verið skilað.

Hlutfall faglærðra leikskólakennara lægst í Reykjavík

„Það sem af er komið af árinu 2018 þá liggur eftir svona um 25 milljónir á mánuði í launaafgangi. Og það sýnir okkur að aukningin frá síðasta ári er um sjö milljónir á mánuði sem er í launaafgang,” útskýrir Guðrún, en árið 2017 var launaafgangurinn um 18 milljónir á mánuði.

Þá segir hún nýliðun í stéttinni gríðarlegt áhyggjuefni en aðeins 4% leikskólakennara í landinu eru undir 32 ára aldri. „Leikskólakennarar sem að starfa á gólfinu, þá er ég að meina leikskólakennarar sem eru ekki stjórnendur, leikskólastjórar eða aðstoðarleikskólastjórar, þeir eru bara að verða um 25% af starfsmannahópnum.”

Sérstaklega sé þetta áhyggjuefni í Reykjavík. „Við erum með lægsta faghlutfallið inni á leikskólum á öllu landinu og við erum höfuðborgin og ættum að standa mun betur að vígi í þessum málum,” segir Guðrún Jóna, samkvæmt visir.

{loadposition nánar fréttir}

oli
Author: oli

Vefstjóri