Lýsir skæru ljósi ef hann kemst í snertingu við nauðgunarlyf

Lýsir skæru ljósi ef hann kemst í snertingu við nauðgunarlyf

 

„Við erum í áfanga í HR sem gengur út á stofnun nýsköpunarfyrirtækja og við fengum þessa hugmynd í hópverkefni sem við unnum að,“ segir Jón Ragnar Jónsson, einn nemendanna, en hópurinn er í samvinnu við efnafræðidoktor í Noregi að útfæra kubbinn. Er honum ætlað að greina efnabreytinguna sem á sér stað þegar helstu nauðgunarlyfjum er smyglað í drykki, en meðal þeirra eru smjörsýra og Rohypnol. Jón segist ekki vita um sambærilega vöru á markaðnum, en hópurinn gekk úr skugga um það í upphafi verkefnisins.

„Stærð kubbsins er á stærð við ísmola og við höfum sett okkur í samband við fjölda skemmtistaða sem hafa lýst yfir áhuga. Kubbnum er svo skellt í drykkinn og lætur þig vita ef einhver laumar einhverju í glasið þitt. Það er hugsunin á bak við þetta,“ segir Jón, en fyrirætlað er að gera bæði einnota og fjölnota útgáfu af kubbnum, samkvæmt vísir.

„Við ætlum að reyna að hafa þetta ódýrt, en líka að búa til útgáfu sem væri þá aðeins dýrari, sem hægt væri til dæmis að hafa í veskinu sínu og nota oft. Þetta er úr plasti þannig að þetta bráðnar ekki.“

Vefsíða safeCube

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri