Krabbameinsleit í leghálsi gæti verið hnitmiðaðri
Í dag eru þau sýni sem tekin eru úr leghálsinum skoðuð til þess að sjá hvort frumubreytingar hafi átt sér stað. „Það er verið að skoða frumurnar sjálfar en ekki orsökina fyrir breytingum á þeim,“ segir Jakob Jóhannsson, krabbameinslæknir, yfirlæknir geislameðferðar krabbameina á Landspítalanum og formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands.
HPV veiran er orsök frumubreytinga sem geta valdið krabbameini í leghálsi. Jakob segir að það vanti að fá tæknina til þess að skoða það hvort konur séu með veiruna hingað til lands.
Leitin að HPV veirunni fer fram með sama hætti og krabbameinsleitin í dag. Komi í ljós að kona sé með HPV veiruna myndi sú kona þyrfti að fylgjast betur með henni og hún að koma oftar í skoðun. Þær konur sem ekki eru með veiruna þyrftu að sama skapi að fara sjaldnar í skoðun.
Þannig sé hægt að skilja að þessa tvo hópa kvenna, þær sem eru í meiri hættu á því að fá frumubreytingar og þær sem eru í minni hættu. „Ef við náum að mæla þetta, þá getum við farið að finna þær sem eru í meiri hættu á að fá frumubreytingar og þar af leiðandi krabbamein,“ segir Jakob.
Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að Kristján Oddsson, yfirlæknir leitarsviðs Krabbameinsfélags Íslands, njóti trausts stjórnar félagins til að framfylgja samningi félagsins við heilbrigðisyfirvöld um krabbameinsleit, samkvæmt visir.
{loadposition nánar fréttir}