Íslenskar vörur oft ódýrari í krónum talið

Íslenskar vörur oft ódýrari í krónum talið

Hafa ber í huga að tölurnar eru ekki kaupmáttarleiðréttar, en kaupmáttur hefur rýrnað hér á landi á síðustu árum á meðan hann hefur aukist á Norðurlöndunum.

 

Bændasamtökin gerðu verðkönnun á landbúnaðarvörum í fimm verslunum á Norðurlöndunum um miðjan október síðastliðinn með aðstoð starfsmanna bændasamtaka viðkomandi landa. Frá þessu er greint í Bændablaðinu, en þar segir að í ljós hafi komið að íslenskar afurðir eru samkeppnisfærar við vöruverð í hinum Norðurlandaríkjunum.

Kannað var verð á léttmjólk, 17 prósenta osti, smjöri, svínakótelettum, heilum kjúklingi, nautahakki, eggjum, kartöflum og tómötum. Verslanirnar sem bornar voru saman eru Bónus, Netto í Danmörku, Rema í Danmörku, Ica Kvantum í Svíþjóð og Remi í Noregi.

Léttmjólk reyndist ódýrust á Íslandi en langdýrust í Noregi og ostur var ódýrastur í Svíþjóð. Íslenska smjörið var ódýrast, en nýsjálenskt og þýskt smjör í verslunum í Danmörku reyndist dýrast. Ódýrustu kartöflurnar voru í Bónus í 1,5 kílóa pakkningum og íslensku tómatarnir einnig.
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Bændasamtökunum, segir verðin sýna að ekkert bendi til þess að vöruverð lækki hér ef frekari innflutningur á erlendum landbúnaðarvörum yrði. Bændasamtökin gerðu ekki sambærilega verðkönnun fyrir gengishrun íslensku krónunnar.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri