Foreldrar setji ekki börn ofan í innkaupakerrur
Niðurstöður rannsókna sýna að séu viðvörunarspjöld í kerrunum láta foreldrar börn sín síður sitja innan um vörurnar í þeim.
Á árunum 2002 til 2004 slösuðust um 100 börn hvert ár við að detta úr innkaupakerru. Herdís Storgaard, verkefnisstjóri átaksins Árvekni, kveðst hafa fengið upplýsingar um fjöldann þegar hún fór í átaksverkefni ásamt Landsbjörgu og fleirum árið 2005.
„Ég veit ekki hver fjöldinn er nú en mér finnst ég sjá fleiri börn standa í innkaupakerrum en áður og ég fæ fleiri hringingar um slíkt. Þetta er jafnframt til umræðu á öllum fræðslufundum sem ég fer á. Fólk hefur áhyggjur og því líður illa þegar það sér börn í sjálfum innkaupakerrunum en kann ekki við að nefna þetta við foreldrana.“
Afleiðingar slysanna hafa orðið mjög alvarlegar, að sögn Herdísar. „Innkaupakerrurnar geta til dæmis farið á hvolf og börnin lent undir þeim, klemmst og hlotið varanlegan skaða af. Það er dæmi um slíkt.“
Í Sálfræðiritinu, tímariti Sálfræðingafélags Íslands, er greint frá rannsókn á því hvort hægt væri að hafa áhrif á þá hegðun foreldra að láta börn sín ofan í innkaupakerrur með því að koma fyrir viðvörunarspjaldi með mynd í þeim. Rannsóknin var gerð í fjórum verslunum á höfuðborgarsvæðinu, Krónunni Bíldshöfða og Lindum, Hagkaup Skeifunni og verslun Hagkaups við Litlatún í Garðabæ, að því er segir í tímaritinu. Fylgst var með þeim viðskiptavinum sem voru með börn á tímabilinu september til desember í fyrra og athugað hvort börnin voru sett ofan í kerruna sjálfa á meðan á verslunarleiðangrinum stóð. Helstu niðurstöður voru þær að hægt var að hafa mikil áhrif á þessa hegðun foreldranna.
Rannsakendur benda á að heildarkostnaður við merkingar á hverri kerru hafi verið 43 krónur og sú ályktun dregin að ef allar kerrur yrðu merktar myndi kostnaður vafalítið minnka töluvert.
Herdís bendir á að foreldrar séu oft þreyttir eftir langan vinnudag þegar þeir fara í innkaupaleiðangur. „Fólk er oft með börn á svipuðum aldri sem einnig eru orðin þreytt. Þá freistast það til að setja annað í sjálfa kerruna. Verslanir mættu bjóða upp á fleiri tvíburakerrur. Það þarf hins vegar að minna foreldra á að innkaupakerrur eru hannaðar fyrir vörur en ekki fyrir barn sem stendur upp í þeim. Það er allt annað mál að setja börn í sætin sem toguð eru út og nokkur fyrirtæki eru til fyrirmyndar hvað þau varðar með því að setja beisli í hverja kerru.“
{loadposition nánar fréttir}