For­eldrar megi ekki vera vondir við sjálfa sig eftir stórt á­fall

For­eldrar megi ekki vera vondir við sjálfa sig eftir stórt á­fall

Sérfræðingur í slysavörnum barna segir það geta verið hættulegt fyrir ungabörn að sofa uppi í rúmi hjá foreldrum sínum. Hún segir foreldra sem lenda í áfalli ekki mega kenna sjálfum sér um.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var rætt við Sjöfn Steinsen sem lenti í því að sjö mánaða gömul dóttir hennar flæktist í hárinu á móður sinni og munaði litlu að hún myndi kafna en snör viðbrögð móðurinnar urðu til þess að nágrannar hennar náðu að klippa dótturina úr hárinu.

Fullorðinsrúm ekki hönnuð fyrir börn

Slys sem þetta eru ekki algeng en gerast þó að sögn Herdísar Storgaard hjá Miðstöð slysavarna barna. Herdís hefur starfað í kringum slysavarnir barna í rúm þrjátíu ár og hefur heyrt af í það minnsta þremur svipuðum málum áður.

„Einmitt eitt af því sem að við erum að benda foreldrum á er að rúmið þeirra, fullorðinsrúmið, er bara alls ekki öruggur svefnstaður og þá eru menn ekki bara að hugsa um að sítt hár geti flækst um háls barnsins, heldur allt sem í rúminu er,“ segir Herdís.

Foreldrar kenni sér ekki um

Hún nefnir sem dæmi að dýnur séu ekki öndunarprófaðar og rúmfatnaður, sængur, koddar og annað sem fullorðnir hafa í rúminu geti verið hættulegt ungabörnum. Herdís telur að rétt viðbrögð hafi bjargað lífi barnsins.

„Við megum ekki, við megum alls ekki, alltaf vera vond við okkur þegar eitthvað hræðilegt hefur komið fyrir okkur. Ég segi yfirleitt við foreldra þegar þeir eru að tala við mig um eitthvað sem þeir hafa lent í að við skulum fókusera á það að allt fór vel og endurskoða hvernig við vorum að gera hlutina. Breyta þá yfir í að gera þetta á annan hátt,“ segir Herdís.

Bara hafa það nauðsynlegasta í rúminu

Hún hvetur foreldra til þess að láta ungabörn sofa í vöggu eða ungbarnarúmi.

„Eins og skilaboðin eru í dag, til að tryggja öryggi ungra barna, er að sofa í eigin vöggu sem uppfyllir allar kröfur eða ungbarnarúmi. Hafa þetta ljótt og leiðinlegt. Ekkert í rúminu nema það allra nauðsynlegasta,“ segir Herdís, samkvæmt visir.

oli
Author: oli

Vefstjóri