Fæðingarmyndatökur angra danskar ljósmæður
„Við sjáum myndirnar birtast á Facebook eða öðrum samfélagssíðum, jafnvel þó fullyrt hafi verið að þær yrðu ekki opinberaðar,” segir Marianne Tolstrup, forstöðukona á spítalanum í Hvidövre. Flestar fæðingar í Danmörku fara fram á spítalanum.
„Birting myndanna er sérstaklega óþægileg þegar barnsmóðirin er ósátt við framkvæmd fæðingarinnar og ljósmóðirin nefnd á nafn.“
Nú hefur Region Midtjylland, yfirstjórn heilbrigðisþjónustu á Mið-Jótlandi, ákveðið að setja skýrar reglur um myndatökur á sjúkrahúsum. Verða reglurnar aðgengilegar ljósmæðrum, sjúklingum og gestum.
Ann Fosgaard, yfirljósmóðir hjá Region Midtjylland, segir líklegt að reglugerðin leiði til þess að fleiri ljósmæður bendi barnshafandi á þær reglur sem fylgi myndatökum eða einfaldlega verði ekki við beiðni þeirra um leyfi til myndatöku.
Samkvæmt dönskum lögum er ólöglegt að taka ljósmyndir eða kvikmyndir án leyfis allra aðila sem fram koma á mynd. Þó svo að flestar fjölskyldur biðji um leyfi áður en ljósmyndir eru teknar er það talsvert þýðingarmeira nú en á árum fyrr. Vill Fosgaard meina að fæstir hafi hugmynd um hve víða slíkar myndir geti farið á samfélagsmiðlum nú til dags, samkvæmt visir.
{loadposition nánar fréttir}