Fæddi barnið í miðjum jarðskjálfta, eins og móðir jörð væri að fagna
Hjónin George Leite eigandi Kalda bars og Anaïs Barthe Leite atvinnudansari bættu í barnahópinn en þriðja barn þeirra kom í heiminn þann 5. júlí síðastliðinn.
Hinn brasilíski Georg og hin franska Anaïs hafa búið um langa hríð á Íslandi. Georg, eða Goggi eins og hann er alltaf kallaður, fluttist sem skiptinemi árið 1998 en níu ár eru síðan Anaïs fluttist hingað til lands. „Við George hittumst fyrst á Kizomba meistaranámskeiði sem ég var að kenna, afrískum paradansi og höfum byggt upp lítið samfélag þarna,“ segir hin nýbakaða móðir Anaïs í samtali við blaðakonu. „Dansinn er í mínum huga hliðarverkefni og ég lít miklu frekar á mig sem nútímadansara og hönnuð.“
Georg Leite og Anaïs Barthe Leite gengu í það heilaga í suður-franskri sveitasælu.
Dansinn dró þau Gogga og Anaïs saman en hjónin giftu sig við fallega athöfn í Suður-Frakklandi síðastliðið sumar.
Georg á Kalda bar og Anaïs Barthe: Brúðkaupsdraumur í Suður-Frakklandi
Hjörtun full af ást og þakkæti
Goggi lærði viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík en hann er þekktastur fyrir líflega framkomu og hlýja nærveru á skemmtistaðnum Kalda bar sem hann rekur.
Litla stúlkan er annað barn þeirra saman en fyrir átti Goggi dótturina Sofiu Leu nítján ára úr fyrra sambandi. Saman eiga þau svo soninn Samuel Mána rúmlega fjögurra ára ásamt stúlkunni nýfæddu. Í einlægri færslu sinni á Facebook tilkynnir hjónin um fæðingu barnsins.
Við erum mjög ánægð að tilkynna fæðingu dóttur okkar, barni og móður heilsast vel. Hún átti glæsilega innkomu í heiminn sem einkenndist af fjölda jarðskjálfta, eins og móðir jörð væri sjálf að fagna fæðingu sinni. Þann 5. júlí, klukkan 22:52, kom hún, 49 cm og 3.316 kg.
Með hjörtu full af ást og þakklæti, fögnum við foreldrahlutverkinu enn og aftur, ævinlega þakklát fyrir einstakar aðstæður í kringum komu hennar. Hjörtu okkar eru full af ást til allra dýrmætu barnanna okkar og við munum njóta allra dýrmætu stundanna.
Hamingjuóskum rignir yfir hjónin, samkvæmt visir.