Ég get ekki mánuð eftir mánuð greitt 85 þúsund krónur
Niðurgreiðslur Reykjavíkurborgar til foreldra barna sem vistuð eru hjá dagforeldrum hafa ekki komið til framkvæmda þrátt fyrir að hafa verið samþykktar í sumar. Faðir nítján mánaða drengs segir svör borgarinnar óljós og greiðslurnar verulega íþyngjandi.
Tillögur að ýmsum úrbótum vegna dagforeldramála voru samþykktar í borgarráði í júní síðastliðinn. Þar kemur meðal annars fram að þegar barn nær átján mánaða aldri, greiða foreldrar sama gjald til dagforeldris eins og í leikskóla Reykjavíkurborgar.
Þar væri miðað við leikskólagjöld sem eru rúmlega 31 þúsund krónur fyrir átta tíma leikskóladvöl. Foreldrar hafa undanfarna daga vakið athygli á málinu á Facebook en þrátt fyrir að borgin auglýsi niðurgreiðslurnar á heimasíðu sinni hafa þær ekki komið til framkvæmda.
Svör borgarinnar óljós
„Mér var sagt að þetta væri bara eitthvað sem væri algjörlega handan við hornið en það virðist sannarlega ekki vera raunin,“ segir Pétur Kristófersson faðir nítján mánaða drengs sem greiðir hátt í hundrað þúsund krónur á mánuði fyrir dagvistun hjá dagforeldri.
„Þetta er mjög íþyngjandi og ég held einmitt að þetta sé ekki fjárhæð sem fólk leikur sér að því að taka upp úr veskinu hjá sér,“ segir Pétur og bætir við að svör borgarinnar vegna málsins séu mjög óljós. Hann sér sjálfur ekki fram á að sonur hans komist inn á leikskóla fyrr en í fyrsta lagi næsta haust, þá rúmlega tveggja og hálfs árs. „Ég get ekki mánuð eftir mánuð greitt 85 þúsund krónur og ég held það séu fáir í þeirri stöðu.“
Orðin tóm
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það hafa komið í opna skjöldu að niðurgreiðslurnar væru ekki komnar til framkvæmda.
„Ég fór að spyrjast fyrir og svörin sem ég fékk var að það hafði í raun ekkert verið gert til að innleiða þessa tillögu sem var samþykkt í sumar. Enn ætti eftir að breyta reglum sem þyrftu að fara í gegnum ákveðið samþykktarferli innan borgarinnar. Ég spurði mig þá bíddu við er þá planið að breytingin taki gildi um áramót en þá virðist ekki heldur búið að áætla fyrir þessum auknu útgjöldum á næsta ára.,“ segir Hildur og heldur áfram: „ Þannig maður spyr sig hvaða tillögur þetta eiginlega voru og hvers vegna þeim var ekki fylgt eftir og hvers vegna þetta eru bara orðin tóm.“
Úrbætur nauðsynlegar
Barnafjölskyldur séu settar í vonda stöðu. Hildur segist ekki skilja hvers vegna tillögurnar voru ekki strax settar í framkvæmd og að það sé lítið mál að breyta texta og gera það sem þarf. „Ekki var hik á mannskapnum að setja textann inn á internetið eða fara með í fjölmiðlana. Þannig að þarna þarf að gera úrbætur á það er alveg klárt,“ segir Hildur.
Í umræðu foreldra um málið á Facebook kemur fram að greiðslubyrði dagvistunar hjá einhverjum foreldrum vegna barna hjá dagforeldrum svipi til afborgana af húsnæðisláni. „Til þess að láta þetta ganga, þá þurfum við, bæði starfsmenn Reykjavíkurborgar, að vinna meira, fyrir Reykjavíkurborg, til þess að geta borgað Reykjavíkurborg fyrir dagvistun, til þess eins að komast í vinnu, hjá Reykjavíkurborg,“ segir ein móðir í færslu á Facebook. Reykjavíkurborg skreyti sig með innantómum loforðum sem enginn virðist vita hvenær eða hvernig verði efnd.
Hildur segir loforðin hafa verið innantóm frá því í júní. „Fólk upplifði að þetta myndi taka gildi á þeim tíma.“, samkvæmt visir.