Átta smíðavellir í borginni
Smíðavellirnir sem eru fyrir börn á aldrinum 9-13 ára, fædd 1998-2002, verða við Ársel, Rimaskóla, Hólmasel, Miðberg, Breiðholtsskóla, Háteigsskóla, Melaskóla og Álftamýrarskóla.
Flestir vellirnir hefja starfsemi 6. júní og standa yfir í 3-5 vikur. Skráningargjaldið er 1000 kr. og skráning fer fram á Rafrænni Reykjavík.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að í sumar verði nóg framboð af afþreyingu í Reykjavík fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 til 18 ára.
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR) býður auk smíðavallanna upp á sumarfrístund fyrir 6-9 ára börn, fædd 2001- 2004, á frístundaheimilum, sumarsmiðjur fyrir 10-12 ára börn, fædd 1998 – 2000, og sumaropnun í félagsmiðstöðvum fyrir 13-16 ára unglinga, fædda 1995-1997.
Að auki býður ÍTR upp á siglinganámskeið og klúbba í Siglunesi fyrir 9 ára og eldri, sem og bátaleigu fyrir alla fjölskylduna.
Dýranámskeiðin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum standa til boða fyrir börn á aldrinum 10-12 ára. Skráning er hafin.