App með íslenskum nöfnum slær í gegn

App með íslenskum nöfnum slær í gegn

Appið heitir Nefna og höfundar þess eru Edda Lára Kaaber framhaldsskólakennari og Björn Þór Jónsson forritari, en þau Björn og Edda eru par og eignuðust nýlega barn saman.

„Okkur fannst allar þessar mannanafnabækur svo stirðar og langaði að búa til eitthvað skemmtilegt úr þessu ferli sem verður til hjá nýbökuðum foreldrum þegar finna á nafn á barnið,“ segir Edda og bætir við að Björn Þór hafi unnið smáforritið sem lokaverkefni í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Í appinu má finna öll íslensk mannanöfn sem samþykkt hafa verið af mannanafnanefnd og þar eru rúmlega 3.000 nöfn, 1.900 stúlkna- og 1.700 drengjanöfn. Nöfnunum er raðað eftir stafrófsröð, vinsældum og flokkum. Í nafnaflokkunum er meðal annars hægt að finna biblíunöfn, landnámsnöfn, nöfn úr Disney-kvikmyndum og frumleg nöfn sem eru nöfn sem enginn heitir.

Einnig er hægt að finna merkingu og uppruna nafna ásamt fjölda þeirra sem heita nafninu nú þegar. Yfir 2.000 manns hafa sótt sér appið og er það ókeypis eins og er. Parið er ekki búið að ákveða hvort það fari eitthvað lengra með verkefnið.

„Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð og það gæti vel verið að það verði boðið upp á einhverja aukaeiginleika síðar sem yrði þá hugsanlega rukkað fyrir,“ segir Edda, sem er þó ekki vongóð um að þau eigi eftir að græða mikið á verkefninu.

Björn og Edda eru að flytja til Danmerkur þar sem þau stefna bæði á að fara í meistaranám í leikjafræði. Þau hyggjast vinna saman við að nýta tækni og tölvuleiki til að skapa þekkingu í framtíðinni.

„Við fáum að vita hvort við komumst inn í námið 15. júní,“ segir Edda sem telur að leikjafræði séu fræði framtíðarinnar. „Okkur langar svo að búa til eitthvað skemmtilegt fyrir nemendur, blanda saman leikjum og kennslu til þess að ná fram meiri áhuga hjá nemendum. Nú eru spjaldtölvur komnar inn í skólastofur en hvað á að gera við þetta?“ spyr Edda sem vinnur nú að því að svara þeirri spurningu, samkvæmt vísir.

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri