Áhyggjufull vegna bróðurdóttur sinnar

Áhyggjufull vegna bróðurdóttur sinnar

Samkvæmt heimildum The Enquirer mun Emma Roberts hafa sökkt sér í skemmtanalífið eftir sambandsslit hennar og Glee-leikarans Chords Overstreet og þetta veldur frænku hennar miklum áhyggjum. „Julia bauð Emmu að búa hjá sér og fjölskyldu sinni á meðan hún væri að jafna sig á sambandsslitunum. Hún heldur að hið rólega fjölskyldulíf gæti haft góð áhrif á Emmu og hefur áhyggjur af því að Emma gæti farið sömu leið og margar aðrar ungar stjörnur,“ sagði heimildarmaðurinn.

 

Emma er dóttir leikarans Erics Roberts sem tók meðal annars þátt í sjónvarpsþættinum Celebrity Rehab árið 2010, samkvæmt vísir.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri