Aðeins þrjú sveitarfélög hafa ekki hækkað gjaldskrána
Það eru Fjarðarbyggð, Ísafjarðarbær og Seltjarnarneskaupstaður. Þetta er niðurstaða Verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði breytingar á gjaldskrám leikskóla og fæði hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. febrúar 2012 til 1. janúar 2013.
Tólf sveitarfélög hafa hækkað gjaldskrána milli ára. Mesta hækkunin á almennri gjaldskrá fyrir átta tíma vistun ásamt fæði, er hjá Akraneskaupstað eða um 14%, Sveitarfélaginu Skagafirði um 9% og Akureyri um 6%. Níu tíma vistun hefur einnig hækkað um 3-14%. Ísafjörður er eina sveitarfélagið sem hefur lækkað hjá sér gjaldskrána milli ára og nemur lækkunin 2% fyrir 8 og 9 tíma vistun. Forgangshópar eru ekki undanþegnir gjaldskráhækkunum, samkvæmt vísir.
{loadposition nánar fréttir}