Endurbætur á leikvöllum í norðurbænum

Endurbætur á leikvöllum í norðurbænum

Í Hafnarfirði eru fjölmargir og fjölbreyttir leik- og sparkvellir og á hverju ári er unnið að viðhaldi og endurnýjun þeirra út frá ákveðinni forgangsröðun. Síðastliðnar vikur hefur verið unnið að endurbótum á leik- og sparkvöllum víðsvegar um bæinn. Starfsmenn þjónustumiðstöðvar hafa unnið að þessum verkefnum með verktökum.