Um helmingur ljósmæðra 55 ára eða eldri og álag mikið
Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir nauðsynlegt að auka fjölbreytileika í verknámi til að tryggja nýliðun í stéttinni. Aukið álag fylgi háum meðalaldri ljósmæðra hér á landi. Um helmingur ljósmæðra hér á landi er 55 ára eða eldri.
