Sólarhringsverkfall Eflingar hófst á miðnætti
Sólarhringsverkfall starfsfólks Eflingar hjá borginni hófst á miðnætti og stendur til miðnættis í kvöld. Um er að ræða aðra vinnustöðvunina í verkfallshrinu Eflingar en sáttafundur stéttarfélagsins og Reykjavíkurborgar hjá ríkissáttasemjara í gær bar engan árangur.
