Telja núverandi opnunartíma leikskóla borgarinnar lífsnauðsynlega mörgum

Telja núverandi opnunartíma leikskóla borgarinnar lífsnauðsynlega mörgum

Hópur fimmtán kvenna skorar á borgarráð að hafna breytingum á opnunartíma leikskóla sem nýverið voru samþykktar í skóla- og frístundaráði. Breytingin felur í sér að almennur opnunartími leikskóla borgarinnar breytist úr 7:30-17:00 í 7:30-16:30. Akureyri, Reykjanesbær og Kópavogur eru meðal sveitarfélaga sem hafa þegar gert breytinguna.