Kópavogsbær þrefaldar stofnstyrk til dagforeldra og eykur framlög
Kópavogsbær hyggst grípa til víðtækra aðgerða til að styrkja umgjörð dagforeldra í bænum. Tillögur um aðgerðir til að bregðast við skorti á daggæsluúrræðum yngstu barna voru samþykktar einróma á fundi bæjarstjórnar síðastliðinn þriðjudag.
