41 sveitarfélag greiðir fyrir skólagögn
Ríflega tvöfalt fleiri sveitarfélög ætla að standa straum af kostnaði grunnskólabarna vegna skólagagna á þessu skólaári en gerðu það í fyrra, alls 41 sveitarfélag. Sautján sveitarfélög til viðbótar ætla að draga úr hlutdeild nemenda í útgjöldum vegna námsgagna.
