Refsing eða bætur fyrir að umgangast ekki barn
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir það koma til tals að líta á það sem refsivert brot þegar foreldri neitar að umgangast börn sín. Lögmaður segir að í slíkum málum gæti verið lausn að láta foreldrið borga miskabætur. Formaður Félags um foreldrajafnrétti segir kerfið verða að grípa inn í í slíkum málum og veita foreldri ráðgjöf.
