Þurftu að berjast fyrir læknisþjónustu en dóttir þeirra reyndist með heilahimnubólgu: „Foreldrar vita bara best, sama hvort þau séu tvítug eða fimmtug“
Fyrir nokkru tóku þau Alexander Bjarki Rúnarsson og Sunneva Sigurðardóttir eftir því að átta mánaða gömul dóttir þeirra, Ingunn Arey, lét ekki eins og hún var vön. Hún var mjög slöpp, með bólgið auga og leið ekki vel.
