Vantar starfsfólk á nær helming leikskóla Reykjavíkurborgar
Af 64 leikskólum í Reykjavík vantar starfsfólk á 27 leikskóla og er um ríflega fimmtíu stöðugildi að ræða. Í tíu leikskólum vantar þrjá til fjóra starfsmenn til að leikskólinn sé fullmannaður fyrir veturinn.
