Yfirhöfn geti dregið úr öryggi barnabílstóla
Úlpur og aðrar yfirhafnir geta valdið því að bílbelti í barnabílstólum virka ekki sem skyldi, segir Herdís L. Storgaard, forstöðumaður Miðstöðvar slysavarna barna. Árekstrarpróf sýni að börn í yfirhöfn fái högg yfir leyfilegum mörkum og það sýni fram á möguleika á alvarlegum áverkum.
