Nýir foreldrar fá jafnari rétt til orlofs

Foreldrar munu fá tólf mánaða fæðingarorlof frá og með árinu 2016, þar af mun hvort foreldri um sig fá fimm mánaða óframseljanlegt orlof. Tveir mánuðir verða sameiginlegir og foreldrar geta ráðstafað þeim að vild.
