Afsláttur af leikskólum leggst af
Hafnarfjarðarbær hyggst leggja afsláttargjaldskrá á leikskólum af en bjóða í staðinn þeim sem eru tekjulágir upp á að sækja um lækkun leikskólagjalda. Formaður fjölskylduráðs segir þessa gjaldskrá sanngjarnari en þá sem nú er við lýði.
