Geta tekið róló í fóstur
Reykvíkingar geta framvegis tekið leikvelli í nágrenni sínu í fóstur ef hugmynd borgarstjórnarmeirihlutans verður að veruleika. Formaður umhverfisráðs segir börn ekki eiga að þurfa að venjast því að vera á illa hirtum og ljótum leikvöllum.
