10 barnafjölskyldur á leið í draumaferðina
Í gær, sumardaginn fyrsta, var tíu börnum og fjölskyldum þeirra afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair. Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.
