Yngstu börnin þurfa að hætta hjá Gerplu

Yngstu börnin þurfa að hætta hjá Gerplu

 

Gerpla hefur frá því í fyrrasumar óskað eftir því við bæjaryfirvöld í Kópavogi að fá aðgang að öðrum íþróttahúsum bæjarins en því sem félagið hefur til afnota í Versölum. Jón segir að þótt aðstaðan í Versölum sé frábær þá sé áhuginn á fimleikum mun meiri en svo að Gerpla geti tekið við öllum sem vilja komast að.

Í bréfum til bæjaryfirvalda frá því síðastliðið haust kemur fram að eitt þúsund börn bíði eftir að geta byrjað að stunda fimleika hjá félaginu. Sum þeirra hafi beðið í þrjú ár.
Að sögn Jóns má meðal annars rekja sprenginguna til samsetningar Kópavogsbúa með tilkomu nýrra hverfa í bænum. Mikið sé af börnum í Kópavogi. „Ég er alls ekkert viss um að við stöndum frammi fyrir sama vandamáli eftir tíu ár,“ bendir Jón á. Hann segir að leysa mætti vandann nú með því að hleypa Gerplu inn í íþróttahúsin Smárann eða Kórinn. Í bæjarstjórn hafi einmitt verið rætt um að nýta þau hús betur.

„Bæjarstjórinn segist hvetja íþróttafélögin til að nýta húsin betur. Ef mönnum finnst léleg nýting á íþróttahúsunum þá getum við leyst þann vanda. Hleypið okkur bara inn í íþróttahúsin og nýtingin mun snarbatna,“ segir Jón, sem kveður bæinn ekki enn hafa svarað fyrrnefndum erindum frá því í haust og ekki léð máls á því að hleypa Gerplu í Smárann eða Kórinn nema í staka tíma sem ekki gagnist. Skýringin sé einföld:
„Smárinn er fyrir Breiðablik og Kórinn er fyrir HK, það er bara pólitísk ákvörðun. Það er ekki sagt beint við okkur en það er augljóst og það sjá allir,“ segir Jón. Húsnæðiseklan muni bitna mest á þeim börnum í flokki þriggja til fimm ára sem ættu að óbreyttu að færast upp um flokk næsta haust.

„Yngstu börnin æfa á sunnudögum. Við sex ára aldur færast þau yfir á virka daga en aðstaðan er algjörlega sprungin á þeim tímum. Við þurfum bæði að vísa frá fólki sem vill koma til okkar og er á biðlista og ef við sjáum ekki talsvert brottfall hjá yngstu iðkendunum núna í sumar þá munum við þurfa að vísa þeim frá,“ segir formaður Gerplu, samkvæmt vísir.

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri