Varað við salmonellu í kjúklingi frá matfugli
Um er að ræða kjúkling með rekjanleikanúmerinu (Rlnr.) 215-10-08-1-03. Dreifing á vörunni hefur verið stöðvuð.
Í samræmi við innra eftirlit fyrirtækisins og í samráði við heilbrigðisyfirvöld hefur verið unnið að innköllun vörunar.
Hafi fólk ferska kjúklinga heima hjá sér er það beðið um að gæta að rekjanleikanúmerinu, sem er að finna á umbúðunum, og skila kjúklingnum í viðkomandi verslun eða beint til Matfugls ehf., Völuteigi 2, Mosfellsbæ.
Skal það tekið fram að þessi kjúklingur er hættulaus fari neytendur eftir leiðbeiningum um eldun kjúklinga, steiki í gegn og passi að blóðvökvi fari ekki í aðra vöru.
Kjúklingur með öðru rekjanleikanúmeri en þessu er fullkomlega í lagi.
{loadposition nánar fréttir}