brjost

Stækka brjóst kvenna með sprengiefni

Fox fréttastofan segir að MI5 hafi einnig komist að því að sprengiefni sé með þessum hætti sett í rasskinnar karlmanna.

Nær ógerlegt sé að greina þetta í öryggistækjum á flugvöllum.

Sprengjusérfræðingar eru sagðir hafa tjáð leyniþjónustunni að 140 grömm af sprengiefni nægi til þess að sprengja talsvert stórt gat á flugvélarskrokk og granda henni.

Silikonpúðar geta verið að þyngd frá 90 grömmum upp í tæplega 800 grömm. Brjóstastór kona gæti þannig verið með yfir eitt og hálft kíló af sprengiefni inn í sér. Margfallt það magn sem þarf til þess að granda flugvél.

Ef málið væri ekki svona alvarlegt gæti manni hætt til þess að hugsa að þetta væru alvöru kynbombur.

 

 

{loadposition nánar fréttir}

 

 

 

 

oli
Author: oli

Vefstjóri