Ný aðferð í lestrarkennslu gæti bætt lesskilning barna
Aðferðin nefnist Byrjendalæsi og felur í sér annars konar nálgun en áður tíðkaðist í lestrarkennslu. Sífellt fleiri skólar leggja aðferðina til grundvallar og nú í ár bætast fjórir skólar í hópinn á höfuðborgarsvæðinu.
Af þeim 174 grunnskólum sem eru á landinu hafa yfir 70 þeirra tekið upp tæknina á síðustu árum. Rósa Eggertsdóttir, íslenskufræðingur, segir að nú sé yfirlýst stefna t.d. Reykjavíkurborgar að allir skólar á höfuðborgarsvæðinu muni taka þátt í verkefninu.
Tæknin var þróuð á vegum Háskólans á Akureyri undir forystu Rósu. Aðferðin hefur vakið töluverða athygli og Rósa var meðal annars tilnefnd til nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands síðasta vetur fyrir verkefnið.
Aðferðin felur í sér nýja nálgun í lestrarkennslu ungra barna. Rósa telur að aðferðin verði til bóta hvað lesskilning ungra barna varðar, en að undanförnu hafa borist fréttir um að lesskilningur íslenskra ungmenna sé afar bágborinn. „Markmiðið er að börn geti tjáð sig betur og náð dýpri tengslum við það sem þau lesa,” segir Rósa.
Rósa segir að í aðferðinni felist róttæk breyting á lestrarkennslu eins og hún tíðkast á Íslandi. „Hljóðkerfið sem við styðjumst við núna er margra áratuga gamalt. Síðan þá hafa farið fram svo miklar rannsóknir á læsi að tímarnir eru tæplega sambærilegir,” segir hún.
Til að skýra hvað felst í aðferðinni í stórum dráttum tekur Rósa dæmi: Við notumst við eina bók í senn, tökum sem dæmi Palli var einn í heiminum. Til að byrja með lesum við bókina fyrir börnin og ræðum svo um hana. Þannig tryggjum við að allir í bekknum skilji um hvað sagan fjallar áður en þeir fara að rembast við að lesa hana. Svo veljum við ákveðin orð í bókinni sem við fjöllum nánar um, tökum út tiltekna stafi og kennum þá. Þannig lenda börnin aldrei í að skilja ekki hvað þau eru að lesa og læra um leið tæknina á bak við lestur.
Rósa hefur unnið með aðferðina Byrjendalæsi frá árinu 2004. Sífellt fleiri skólar taka þátt í verkefninu sem Háskólinn á Akureyri heldur utan um og bera aðferðinni vel söguna. Hún vekur stöðugt meiri athygli og nú er að fara í gang þriggja ára rannsókn á fyrirbærinu á vegum Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands. Þar verður meðal annars rannsakað hvort aðferðin gefur góða raun.
{loadposition nánar fréttir}