Eignaðist barn tvisvar á átta mánuðum

Eignaðist barn tvisvar á átta mánuðum

 Konan, sem er frá Wales, heitir Claire Ormrod eignaðist dóttur sína Alice þegar hún einungis komin 25 vikur á leið, eða rúmlega sex mánuði. Þetta var 6. desember árið 2011. Í fyrstu var talið að Alice hefði það ekki af og var mjög veik fyrstu dagana. En allt fór þó vel að lokum og þroskaðist hún á eðlilegan hátt.

En sjö vikum síðar varð Ormrod aftur ófrísk, þrátt fyrir að vera á getnaðarvarnarpillunni. Átta mánuðum síðar eða í september árið 2012 kom sonur hennar Gareth í heiminn, eftir 29 vikur, eða rúmlega sjö mánuði.

„Í sannleika sagt varð ég alveg skíthrædd þegar ég komst að því að ég væri ófrísk á nýjan leik,” segir Ormrod í samtali við Telegraph. „Læknirinn ráðlagði mér að fara í fóstureyðingu, ég myndi drepa sjálfa mig og barnið, og það væri alls ekki sanngjarnt að ég þyrfti að ganga í gegnum þetta. En ég stóð fast á mínu og sagðist ætla að eignast barnið,” segir hún, samkvæmt vísir.

 

{loadposition nánar fréttir}

 

oli
Author: oli

Vefstjóri