Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa
Starfsmenn Reykjavíkurborgar skoða nú hvort unnt sé að breyta fyrirkomulagi varðandi frístund barna á sumrin. Foreldrar í Reykjavík hafa kallað eftir auknu fjármagni og breyttu fyrirkomulagi við úthlutun plássa. Nú ríki fyrirkomulagið „fyrstur kemur fyrstur fær“ sem þýði að þau sem þurfi mest á plássinu að halda fái ef til vill ekkert pláss, séu þau…
