85 prósent ljósmæðra telja manneklu hafa ógnað öryggi mæðra
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar BHM telja 85 prósent ljósmæðra að mannekla hafi ógnað öryggi mæðra á síðustu sex mánuðum og 48 prósent segja þetta gerast oftar nú en áður. Tæplega þriðjungur ljósmæðra segist hafa íhugað að hætta ljósmóðurstörfum á síðustu tveimur árum, sem má helst rekja til of mikils álags, manneklu og óánægju með styttingu…
