Fyrsta sinn í Íslandssögunni sem nýir foreldrar eru alveg einir á báti
Sérfræðingur í fjölskyldu- og hjónabandsráðgjöf segir mjög mikilvægt fyrir allar kynslóðir að ömmur og afar hjálpi nýjum foreldrum og passi barnabörnin. Nýir foreldrar eigi ekki rétt á að amma og afi passi en samtal um þátttöku þeirra verði að eiga sér stað.
