Stöðugildi í leikskólum Reykjavíkur í samræmi við þarfir
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir færri stöðugildum í leikskólum á næsta ári en fyrri ár. Ástæða þess er að starfsmönnum var bætt við á leikskólum borgarinnar vegna sóttvarnarreglna sem gerðu ráð fyrir hólfun á vinnustöðum. Þess vegna fjölgaði starfsfólki leikskóla á árunum 2020-2022 en dregst nú lítið eitt saman milli ára.
