Aron, Freyja og Alexandra vinsælustu nöfnin
Aron var vinsælast drengjanafna á síðasta ári og Freyja og Alexandra vinsælustu stúlknanöfnin. Þetta segir í nýrri tilkynningu frá Þjóðskrá.
Töluverður munur var á vinsælasta eiginnafni nýfæddra drengja og því næstvinsælasta. Alls fengu 48 drengir nafnið Aron í fyrra en 37 voru nefndir Alexander.
