Lýsa kaldranalegu viðmóti á sængurlegudeild: „Við vorum hundsuð út í eitt“
Andri Freyr Sveinsson og Guðrún Arndís Aradóttir eignuðust sitt fyrsta barn í lok maí síðastliðnum. Sonur þeirra, sem var hætt kominn við fæðingu, var fluttur með sjúkraflugi frá Akureyri til Reykjavíkur. Guðrún var sjálf afar illa á sig komin eftir fæðinguna en henni var flogið til höfuðborgarinnar síðar sama dag og lögð inn á sængurlegudeild Landspítalans.
