Frjósemi kvenna á Íslandi aldrei minni
Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 var minni en nokkru sinni fyrr. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar segir að frjósemi í fyrra hafi verið 1,71. Þá hélt meðalaldur frumbyrja áfram að hækka og var 27,8 ár. Ef horft er til Evrópu var algengast að barn fæðist utan hjónabands á Íslandi.
