Búa til krúsir í baráttu gegn krabba
Vinkonurnar fimm eru í frumkvöðlaáfanga í Verzlunarskólanum þar sem verkefnið er að stofna fyrirtæki og framleiða vöru. Þær ákváðu að búa til hundrað keramikbolla, selja þá á fimm þúsund krónur stykkið og láta ágóðann renna til Krabbameinsfélagsins.
