Þurfa að vísa eggjagjöfum frá
Fyrr á þessu ári ákvað danska þingið að hækka greiðslu til kvenna sem vilja gefa egg til tæknifrjóvgunar úr 2.400 dönskum krónum í 7.000. Fleiri konur hafa þess vegna snúið sér til tæknifrjóvgunarstofanna í því skyni að gefa egg, að því er segir í frétt danska ríkisútvarpsins.
